Náttúrustofa Vestfjarða hefur haft umsjón með mati á umhverfisáhrifum snjóflóðavarna í Bolungarvík.
Matskýrslu hefur verið skilað til Skipulagsstofnunar, en úrskurður liggur ekki fyrir
Þorleifur Eiríksson, Hafsteinn H. Gunnarssson, Arnlín Óladóttir, Jón Reynir Sigurvinsson, Ragnar Edvardsson og Margret Valdimarsdóttir. 2002. Snjóflóðavarnir í Bolungarvík - Traðarhyrna. Mat á Umhverfisáhrifum. Skýrsla unnin fyrir Bolungarvíkukaupstað. Náttúrustofa Vestfjarða. NV nr. 1-02. (skýrsla)
Náttúrustofa Vestfjarða vinnur nú að undirbúningi fornleifarannsókna vegna byggingu snjóflóðavarna í Bolungarvík. Ragnar Edvardsson fornleifafræðingur hefur umsjón með verkinu.(meira)
Hættumat fyrir Bolungarvík
Tillögur að hættumati vegna ofanflóða í Bolungarvík voru unnar af Veðurstofu Íslands á vegum hættumatsnefndar Bolungarvíkur. Umhverfisráðherra skipaði nefndina í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 505/2000 um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða og gerð bráðabirgðahættumats.
Vinna við hættumat fyrir Bolungarvík hófst árið 1994 samkvæmt reglugerð sem þá var í gildi. Verkinu var síðan frestað 1995 vegna snjóflóðaslysa í Súðavík og á Flateyri. Vinna við núverandi hættumat hófs árið 2000. Niðurstöður hættumatsins verða kynntar á opnum borgarafundi 10. desember 2002 og liggja síðan frammi til kynningar í fjórar vikur.
Skýrslur og kort
Mat á hættu vegna ofanflóða í Bolungarvík (kynningarbæklingur, hættumatsnefnd Bolungarvíkur, 2002) (bæklingur)
Mat á hættu vegna ofanflóða í Bolungarvík (hættumatsnefnd Bolungarvíkur, 2002) (greinargerð)
Hættumatskort, Bolungarvík (tillaga hættumatsnefndar Bolungarvíkur, desember 2002) (kort 1)
Hættumatskort, Bolungarvík (tillaga eftir byggingu varnarvirkja) (kort 2)
Nánari upplýsingar á heimasíðu Veðurstofu Íslands.http://www.vedur.is/snjoflod/haettumat/bo/index.html
Fréttir
12.12.2002
Málefnalegur fundur um snjóflóðavarnir í Bolungarvík(frétt af BB)
15.11.2002
Hættumat fyrir Bolungarvík tilbúið og verður kynnt á borgarafundi 10 des. 2002. (frétt af BB)
23.10.02
„Snjótæknilegir ráðgjafar“ meti áhrif þess að sleppa leiðigarði. (frétt af BB)
7.08.02
Snjóflóðavarnir í Bolungarvík í bið að minnsta kosti fram á haust. (frétt af BB)
29.4.2002
Vakin er athygli á eftirfarandi auglýsingu frá Skipulagsstofnun.
Snjóflóðavarnir í Bolungarvík - Traðarhyrna.
Ný gögn og framlenging athugasemdafrests um mat á umhverfisáhrifum - athugun Skipulagsstofnunar. Kynningartími tillögu að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar hefur verið framlengdur til 14. maí 2002. Líkan af snjóflóðavarnarvirkjum hefur verið búið til og er til sýnis á skrifstofu Bolungarvíkurkaupstaðar. Matsskýrslan, ásamt nýju myndefni, liggja frammi á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu Bolungarvíkurkaupstaðar, bókasafni Bolungarvíkur, einnig í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun í Reykjavík. Matsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu Náttúrustofu Vestfjarða:skýrsla Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 14. maí 2002 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum. Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000. Skipulagsstofnun.
19.4.2002
Að beiðni bæjarstjórnar Bolungarvíkur hefur verið ráðist í byggingu líkans af fyrirhuguðum snjóflóðavörnum í Bolungarvík í skalanum 1:500. Bæjarstjórn Bolungarvíkur ákvað að láta smíða líkan í kjölfar þeirra óska sem fram komu á opnum kynningarfundi sem haldinn var þann 8. apríl s.l. Tilgangurinn er fyrst og fremst sá að bæta upplýsingagjöf til íbúa Bolungarvíkur. Líkanið verður til sýnis í fundarsal bæjarstjórnar Bolungarvíkur frá og með 22. apríl næstkomandi.
3.4.2002
Kynningarfundur um mat á umhverfisáhrifum snjóflóðavarna í Bolungarvík verður haldinn í Víkurbæ í Bolungarvík mánudaginn 8. apríl kl 20.00. dagskrá.
12.03.2002
Bolungarvíkurkaupstaður kynnir mat á umhverfisáhrifum snjóflóðavarna í Bolungarvík. (skýrsla)
Náttúrustofa Vestfjarða | Aðalstræti 12 | 415 Bolungarvík | kt 610397 2209 | sími: 456 7005 | netfang: nave [hjá] nave.is