Margrét Hrönn Hallmundsdóttir var í viðtali á Rás 1 í gær og fjallaði um fornleifarannsóknir almennt en aðallega um fornleifarannsóknir í Arnarfirði.
í uppgrefti við Arnarfjörð; Á Hrafnseyri, og á Parti í landi Auðkúlu hefur komið í ljós að mikil járnvinnsla hefur átt sér stað á bæjunum.
Á Parti í landi Auðkúlu er skáli sem rannsóknir eru hálfnaðar á og er fyrirhugað að halda áfram með uppgröftinn í sumar. Í fyrstu aldursgreiningunni kom í ljós að skálinn er frá 9 öld. Í fyrra sumar var grafinn öskuhaugurinn og á eftir að koma út úr aldursgreiningunni á honum en búist er við að sé frá 10 - 11 öld. Þar hafa fundist glerperlur, silfurhringur og dæmigerðir víkingaaldagripir.
Hægt er að hlusta á viðtalið hér:
Náttúrustofa Vestfjarða | Aðalstræti 12 | 415 Bolungarvík | kt 610397 2209 | sími: 456 7005 | netfang: nave [hjá] nave.is