Skógarþrösturinn (fræðiheiti: Turdus iliacus) er mættur aftur til Vestfjarða en það sást til hans í síðustu viku. Hann er einn af algengustu garðfuglum á Íslandi og minnir söngur hans óneitanlega á að sumarið er á næsta leiti.
Skógarþröstur er að mestu farfugl en hann kemur til landsins í byrjun apríl og fer frá landinu í október. Samt er vaxandi hópur farinn að hafa vetursetu á landinu, þá aðallega á suðvesturhluta landsins.
Náttúrustofa Vestfjarða | Aðalstræti 12 | 415 Bolungarvík | kt 610397 2209 | sími: 456 7005 | netfang: nave [hjá] nave.is