Vesturbyggð, Umhverfisstofnun, Náttúrustofa Vestfjarða og landeigendur á Rauðasandi ætla að standa fyrir fjöruhreinsun á Rauðasandi í Vesturbyggð laugardaginn 4. júlí frá kl. 10:00 – 15:00. Hreinsunin fer fram á austurhluta Rauðsands við bæinn Melanes, Þetta er fyrsti áfangi í hreinsun strandlengjunnar á Rauðasandi sem verður framhaldið á næsta ári. Boðið verður upp á samlokur og drykki að verki loknu.
Þeir sem eru tilbúnir til að leggja hönd á plóg eru vinsamlegast beðnir að skrá sig í síma 822-4019 eða senda póst á netfangið hakon@ust.is fyrir föstudaginn 3. Júlí. Mæting er við Félagsheimilið á Patreksfirði, kl. 10:00 þar sem sameinast verður í bíla eða á Melanesi kl. 10:40.
Vonumst til að sjá sem flesta
Vesturbyggð
Náttúrustofa Vestfjarða
Umhverfisstofnun
Náttúrustofa Vestfjarða | Aðalstræti 12 | 415 Bolungarvík | kt 610397 2209 | sími: 456 7005 | netfang: nave [hjá] nave.is