Náttúrustofa Vestfjarða auglýsir starf í móttöku á söfnunum Ósvör og Náttúrugripasafni Bolungarvíkur.
Starfið er aðeins fyrir námsmann 18 ára eða eldri sem búsettur er í Bolungarvík og er á milli anna, þ.e. hefur verið í námi á líðandi vetri og er skráður í nám í viðurkenndri menntastofnun, innlendri eða erlendri í haust.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt, verið liðlegur í samskipum við viðskiptavini og samstarfsfólk og enskumælandi. Umsóknarfrestur er til 27. maí 2015.
Nánari upplýsingar gefur Böðvar eða Hulda í síma 456-7005 eða á nave@nave.is
Náttúrustofa Vestfjarða | Aðalstræti 12 | 415 Bolungarvík | kt 610397 2209 | sími: 456 7005 | netfang: nave [hjá] nave.is