Starfsmenn Náttúrustofu Vestfjarða merktu nokkra lómsunga í Bolungarvík. Ungar voru á tveimur tjörnum sem eru að þorna upp en vatnið var orðið það lítið að fullorðnu fuglarnir voru hættir að lenda á því og gátu ungarnir ekki tekið á loft. Það höfðu því liðið nokkrir dagar frá því að ungarnir höfðu fengið sína síðustu máltíð. Ungarnir hefðu á endanum skriðið í næsta vatn/sjó en sú ferð getur samt orðið þeirra síðasta ef þeir bíða of lengi.
Náttúrustofa Vestfjarða | Aðalstræti 12 | 415 Bolungarvík | kt 610397 2209 | sími: 456 7005 | netfang: nave [hjá] nave.is