Fornleifadeild Náttúrustofu Vestjarða hlaut á dögunum styrk frá Fornminjasjóði að upphæð 2.2 miljónir króna fyrir rannsóknina Arnarfjörður á miðöldum. Jafnframt fékk rannsóknin styrk frá prófesorsembætti Jóns Sigurðsonar á Hrafnseyri.
Rannsóknir munu halda áfram í Arnarfirði í ágúst í sumar. Rannsóknir munu fara fram á Hrafnseyri og á Auðkúlu. Fimm fornleifafræðingar munu starfa við rannsóknina.
Síðasta sumar fundust á Hrafnseyri frekari minjar um kolavinnslu og niðurgrafinn bygging þar sem munnmæli og örnefni segja að undirgangur hafi verið á Sturlungaöld. Byggingin verður rannsökuð frekar í sumar.
Á Auðkúlu munu rannsóknir halda áfram á hinu forna bæjarstæði við Dysjargil.
Náttúrustofa Vestfjarða | Aðalstræti 12 | 415 Bolungarvík | kt 610397 2209 | sími: 456 7005 | netfang: nave [hjá] nave.is